CERACOAT CERAMIC ELDVÖRN, 200 ML
ELDVÖRN
Fyrir allt yfirborð, t.d. vefnaðar, rúskinns, pappírs, pappa og viðar, fatnaðar, húsgagna, teppa, gluggatjalda, rúmdýna, rúmfatnaðar, bílsæta, bílteppa og bílblæja.
CERACOAT eldvörnin er eldtefjandi hjúpur, sem nota má á fjölmörg efni og yfirborð.Hinn þunni Ceracoat™ nanóhjúpur verndar hverskyns rakadræga vefnaðarvöru gegn því að verða eldi að bráð og er algjörlega ósýnilegur! Ef vörnin er ekki þvegin í burtu, mun hún endast um tíð og tíma. Þegar eldur brýst fram, mun hjúpurinn verja yfirborðið frá því að skýðloga í hið minnsta 90 mínútur. (B1 alþjóðavottað).
ER ELDTEFJANDI OG EYKUR ÖRYGGIÐ!NOTKUN
Úða þarf efninu á þurrt, hreint og rakadrægt yfirborð, svo sem á við, pappír, og vefnað, og láta síðan þorna.VIRKNIEfnið sem úðað er á dregur í sig hina virku CERACOAT vörn. Vörnin helst óvirk, þar til yfirborðið hitnar upp að 250°C, þá verður CERACOAT eldvörnin virk og kemur í veg fyrir að efnið nái að skýðloga.
ELDVARNIR Á HEIMILUM
CERACOAT eldvörninni er líka hægt að úða á þunnan við, pappír, pappa og vefnað eða á allt rakadrægt náttúrulegt efni. Eldur mun ekki ná sér á strik, þar sem Ceracoat eldvörnin hefur verið notuð. Hún er t.d. tilvalin til að verja kerta-jólaskraut.Ceracoat eldvörnin er eiturefnalaus, gríðarlega öflug, náttúruvæn, litlaus, lyktarlaus og hefur engin áhrif á matvæli.